Tuesday, May 11, 2010

Hugsteypan er komin með nýja heimasíðu: http://hugsteypan.com/

Hugsteypan has a new web site: http://hugsteypan.com/

Wednesday, May 6, 2009

Hugsteypan undirbýr sýninguna MINJAR, náttúra í myndlist // myndlist í náttúru sem opnar í Náttúrufræðistofu Kópavogs Laugardaginn 9. maí kl. 15.30.

Á sýningunni gefur að líta verk sem flest eru unnin sérstaklega fyrir húsakynni Náttúrufræðistofu Kópavogs. Tengsl náttúru og myndlistar eru hér í brennipunkti í breiðum skilningi, en einnig flettast inn vangaveltur um söfn almennt og hvaða hlutverki þau hafa að gegna. Hvað leitast þau við að varðveita og passa uppá að komandi kynslóðir fái að sjá og hvaða sögu inniheldur það sem gestum er sýnt? Eftir hvaða kerfi eru munirnir flokkaðir og á hvaða hátt eru þeir settir fram til sýnis?

Náttúran hefur lengi verið listamönnum hugleikin. Sýn og úrvinnsla hafa þróast og breyst frá því að fyrstu málararnir sátu úti með trönurnar sínar en sjá má á myndlist samtímans að enn skoðum við og rýnum í náttúruna og vinnum út frá henni ný og spennandi myndlistarverk.

Á þessari sýningu eiga myndlistarverkin samtal við þá gripi sem fyrir eru. Saman tvinnast þessar tvær sýningar, myndlistarsýningin og náttúrufræðisýningin, og úr verður tímabundin heildarsýning sem þannig skrifar áfram tengslasögu náttúru og myndlistar.

Þeir sem eiga verk á sýningunni eru: Anna Líndal, Bjarki Bragason, Eygló Harðardóttir, Harpa Árnadóttir, Harpa Dögg Kjartansdóttir, Hekla Dögg Jónsdóttir, Helga Arnalds, Hildigunnur Birgisdóttir, Hugsteypan, Hildur Bjarnadóttir, Ingibjörg Jónsdóttir, ,Jeannette Castioni, Magnea Ásmundsdóttir, Pétur Thomsen, Rósa Sigrún Jónsdóttir, Sigurrós Svava Ólafsdóttir og Unnar Örn Auðarson Jónsson.

Sýningarstjórar eru Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir og Þórdís Jóhannesdóttir

Sýningin opnar í Náttúrufræðistofu Kópavogs laugardaginnn 9. maí kl. 15.30 og stendur til 31. ágúst. Aðgangur er ókeypis.